Íslenski þjóðsöngurinn
Þetta er undirsriftasöfnun fyrir því að fá betri þjóðsöng.
Lofsöngur: Ó Guð vors lands er þjóðsöngurinn okkar, en við viljum skipta yfir í Ísland er land þitt ( hér í flutningi Pálma Gunnarssonar).
Núverandi lofsöngur er allt of erfiður fyrir venjulegt fólk að syngja, og vekur ekki sömu tilfinningar og Ísland er land þitt.
Það þarf að breyta Lög um þjóðsöng Íslendinga 1983 nr. 7 8. mars . Þar segir m.a. að ekki megi flytja þjóðsönginn nema í upprunalegri gerð, ella á fólk á hættu að vera sett í steininn í allt að tvö ár. Við viljum mega stolt syngja þjóðsönginn okkar án þess að eiga á hættu að vera hent í tugthús!
Svo er það líka tímaskekkja að vera með guð í þjóðsöngnum. Ísland er fyrir Íslendinga, ekki bara kristna Íslensdinga.
Við stefnum á að vera komin með a.m.k. 20,000 undirskriftir fyrir 17. júní. Þá afhendum við þær Forsætisráðherra Íslands (sem er rétthafi núverandi þjóðsöngs) og Forseta Íslands.